1.8.2012 | 20:27
Stjórnarskrárklúður 10
Um11. grein
Stjórnlagaráð leggur til að 11. grein frumvarps hennar verði eftirfarandi:
Friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu skal tryggð. Ekki má gera líkamsrannsókn eða leit á manni, leit í húsakynnum hans eða munum, nema samkvæmt dómsúrskurði eða sérstakri lagaheimild. Það sama á við um rannsókn á skjölum og póstsendingum, símtölum og öðrum fjarskiptum, svo og hvers konar sambærilega skerðingu á einkalífi manns. Þrátt fyrir ákvæði fyrstu málsgreinar má með sérstakri lagaheimild takmarka á annan hátt friðhelgi einkalífs, heimilis eða fjölskyldu ef brýna nauðsyn ber til vegna réttinda annarra."
Athugasemd:
Greinin er nánast samhljóða 71. gr. stjórnarskrárinnar. Breytingartillaga ráðsins er óþörf. Ráðið leggur til að orðið tryggja" komi í stað orðsins njóta" í 71. grein. Hvernig á að tryggja friðhelgi...? Menn hafa ráðist inn á heimili og spillt friðhelgi þeirra. Einnig hafa menn ráðist inn á Alþingi og spillt friðhelgi þess.. Slíkir atburðir hefðu gerst þótt orðið tryggja" hefði verið í greininni í núgildandi stjórnarskrá Best er að hafa greinina óbreytta eins og hún er í stjórnarskránni