4.9.2012 | 12:54
Stjórnarskrárklúður 36
Um 102. grein.
Stjórnlagaráð leggur til að greinin verði eftirfarandi:
Dómarar eru þeir sem skipaðir hafa verið ótímabundið í embætti dómara eða settir til að gegna því um tiltekinn tíma. Til dómstarfa geta dómstólar ráðið eða kvatt aðra eftir því sem mælt er fyrir í lögum. Ráðherra skipar dómara og veitir þeim lausn. Dómara verður ekki vikið endanlega úr embætti nema með dómi, og þá aðeins ef hann uppfyllir ekki lengur skilyrði til að gegna embættinu eða sinni ekki skyldum sem starfanum tengjast."
Athugasemd:
Fella ber niður: Ráðherra skipar dómara og veitir þeim lausn." Í stað þess komi: Forseti Íslands skipar dómendur og veitir þeim lausn. Skipan þeirra fer eftir ákvæðum 96. greinar stjórnarskrárinnar.